Æ hvað það væri dálítið gaman ef eftirlit hér á landi gegn blekkingum og svindli gagnvart landanum væri nú aðeins virkara en það er. Litli Fararheill bendir á slæm dæmi um svindl og svínarí í viku hverri en ekkert bólar á sektum eða viðvörunum Neytendastofu.

Sólin hér fullyrðir fólk hjá Sumarferðum en hvergi finnst þetta lága auglýsta verð þeirra. Skjáskot
Eitt dæmið enn rak á fjörur okkar í dag við lestur á fréttavef Vísis. Þar gefur að líta auglýsinguna hér til hliðar en þar vill ferðaskrifstofan Sumarferðir, í eigu svindlarans og framsóknarmannsins Pálma Haraldssonar, fá landann í sólina suður í höfum og býður það sem virðist vera bara nokkuð sanngjarnt lágmarksverð. Eða hver slær hendi mót viku undir haustsólinni niður í 49.900 krónur?
En oft er hængur á hlutum hjá fyrirtækjum Pálma og drjúg leit á vef Sumarferða leiðir í ljós að ALLS EKKERT tilboð finnst niður í 49.900 krónur á mann í sólarferð á næstunni. Allra lægsta fargjald sem finnst til dæmis á haus á sérstakri tilboðsferðasíðu Sumarferða kostar 70.677 krónur á einstakling og þar miðað við fjóra saman.
Verðmunur á auglýstu verði og raunverulega lægsta verði hjá Sumarferðum er því rúm 40 prósent hvorki meira né minna. Hjá siðmenntuðum þjóðum er slíkt flokkað sem svik og sektir gjarnan lagðar á vegna slíks. En enginn er á tékkinu hér á skerinu sem fyrr. Og neytendur gjalda fyrir.







