Það er nánast alveg sama hvaða einkunnavefs litið er til: Harry Potter skemmtigarðurinn í Universal í Orlando fær frábæra dóma frá velflestum sem þangað fara.

Hönnuðum skemmtigarðs tileinkuðum Harry Potter þykir hafa tekist einstaklega vel til

Hönnuðum skemmtigarðs tileinkuðum Harry Potter þykir hafa tekist einstaklega vel til

Universal kallar þetta Harry Potter and the Forbidden Journey og er þetta nýjasti hluti skemmtigarðakeðju Universal sem margir kannast við sem heimsótt hafa Orlando.

Í töfragarði Harry Potters er alvöru kastali hvers fyrirmynd var Hogwarts skólinn í kvikmyndunum og bókunum um töframanninn unga og ævintýri hans sem hvert barn ætti að þekkja.

Gestir geta gengið um stofur og rými kastalaskólans fræga og fleiri bygginga úr kvikmyndunum. Hér er hægt að bragða matvæli og drykki sem rekja má til tíma Potters og síðast en ekki síst er hér rússíbanareið með kostulegum tækninýjungum sem hræðir víst og heillar til skiptis. Svo er hægt að fljúga líka.

Töfraveröld Potters er hluti af Islands of Adventure skemmtigarði Universal og þjóðráð að fara með smáfólkið á staðinn. Taka skal þó heilan dag undir því garðurinn trekkir duglega og töluverð bið er heimsókn fylgjandi. Fyrir utan að það kostar hvern fullorðinn hartnær ellefu þúsund krónur dagspassinn og börnin fá miðann ekki mikið ódýrari eða á um tíu þúsund krónur.

Svo er líka hægt að skoða meðfylgjandi myndband og láta nægja.