Það er sem við segjum. Svínarí hvers kyns gagnvart almenningi virðist í tísku hjá mörgum fyrirtækjum innlendum sem erlendum. Til dæmis hjá hinni frægu hótelbókunarvél Booking.

Algjörlega frábært tilboð á gistingu virðist vera raunin hér hjá Booking. Skjáskot
Við höfum oft og ítrekað bent á ýmislegt miður hjá Booking sem er sú hótelvél sem allir helstu aðilar á Íslandi bjóða þér upp á. Þar með talin fyrirtæki eins og Icelandair, Wow Air og Dohop. Það þarf því aldrei að gera verðsamanburð milli þessara aðila því þar er sama verð á sömu gistingu hjá öllum aðilum öllum stundum.
Eitt það sem fer mjög í taugarnar á okkur, og kannski þér líka eftirleiðis, er þegar Booking auglýsir eitthvað sérstaklega frábært tilboð á vef sínum. Tilboð eins og það sem sést á meðfylgjandi skjáskoti hér til hliðar.
Þar auglýst 62 PRÓSENTA afsláttur á gistingu eina nótt á sæmilegu hóteli í Kaupmannahöfn 11.-12. september. En þó aðeins í dag svo allir verða að hlaupa til pronto. Það ekkert smáræði og aldeilis eitthvað til að grípa í einum grænum.
Eða hvað?
Dyggir lesendur okkar vita hvert við erum að fara með þetta 🙂 Við höfum nefninlega bent á þetta áður og áður og áður. Vorum við búin að segja áður?
Ef áhugasamur aðili gluggar augnablik á bókunarvef Fararheill, hér að neðan, og leitar að gistingu á sama hóteli á sömu dagsetningum og Booking auglýsir 62 prósenta afsláttinn sinn kemur í ljós að það tilboð er ekkert sérstaklega merkilegt.

Nei sko! Það er bara fullt af aðilum að bjóða 62 prósenta afsláttarkjör á hótelinu á sama tíma!!! Sumir jafnvel að bjóða enn meiri afslátt en Booking og minnast ekki orði á neitt sértilboð.
Reyndin er þó ekki sú að allir séu að njóta sömu afsláttarkjara og Booking. Fremur að Booking er að blöffa með afsláttarkjörin. Átján til tuttugu og fimm þúsund krónur er NORMALT verð fyrir gistingu eina nótt á Copenhagen Mercur Hotel. Ekki rúmlega 45 þúsund krónur fyrir beisik tveggja manna herbergi eins og Booking gefur í skyn.
Ekki láta plata þig.







