Okkur hér telst til að við höfum brúkað lággjaldaflugfélagið Norwegian alls nítján sinnum á síðustu tólf mánuðum frá Íslandinu góða. En ýmislegt bendir til að þær ferðir verði ekki mikið fleiri.

Forráðamenn Norwegian með böggum hildar þessa síðustu og verstu.
Engar fréttir fyrir fréttaþyrsta að norska lággjaldaflugfélagið Norwegian hefur barist duglega í bökkum síðustu misserin. Þar mikið til sama vandamál og Skúli nokkur Mogensen lenti í; miklar fjárfestingar í nýjum flugleiðum á sama tíma og hörð samkeppni leyfir engar hækkanir á fargjöldum þrátt fyrir miklar hækkanir á eldsneyti.
Ekki aðeins er fjárhagur þeirra norsku við hættumörk heldur og bætir ekki úr skák að Norwegian notaði mikið af þeim Boeing Max vélum sem nú sitja og safna ryki vegna hönnunargalla. Rellur sem líklega enginn flýgur með þó þeir fái borgað fyrir í framtíðinni.
Enn syrtir þó í ál Norwegian ef marka má upplýsingar eftir fyrsta ársfjórðung þessa árs hjá flugfélaginu. Þrátt fyrir að markaðsfólk Norðmannanna skrifi lipran texta og allt virðist á uppleið við fyrstu sýn kemur ein setning sérstaklega norskt fyrir sjónir:
„Receivables have increased by NOK 3,951 million during the quarter due to increased production, increased hold-backs from credit card acquirers and seasonality.”
Taktu sérstaklega eftir increased hold-backs from credit-card acquirers. Það merkir að kortafyrirtæki og bankar eru farin að halda eftir stærstum hluta kortagreiðslna til Norwegian þangað til flug hefst.
Með öðrum orðum; ef þú ætlar að fljúga með British Airways í október og neglir fargjaldið núna þá fær flugfélagið greiðsluna inn á bók næstum hiklaust. En vegna þess að kortafyrirtæki vilja helst ekki greiða út tugmilljarðabætur til fólks sem kannski fær ekki þá vöru eða þjónustu sem það hefur greitt fyrir með korti, halda kortafyrirtækin eftir greiðslum alveg fram að brottför ef vafi leikur á fyrirtækinu. Sem merkir að Norwegian fær lítið sem ekkert af kortagreiðslum inn á reikninginn fyrr en fólk er kallað út í vél á brottfarardegi.
Þetta ekkert lítið mál nú þegar 99,9 prósent allra flugferða á vesturlöndum eru greiddar gegnum kort af einhverju taginu.
Af þessu má ráða að þrátt fyrir fögur orð og fyrirheit er framtíð Norwegian vafasöm í meira lagi. Það er á þeim bænum sem fólk hrópar þrefalt húrra fyrir yfirstandandi verkföllum SAS því þau verkföll þýða mun meiri bisness fyrir Norwegian. Bisness sem kannski nægir til að Norwegian lifi næstu mánuðina. En kannski ekki…







