Svo þig langar oggupons að lyfta þér upp með stuttri borgarferð áður en haustið byrjar að ofkæla fólk alvarlega niður hér heima með tilheyrandi pestum og niðurgangi. Leyfist okkur að mæla með Lyon í Frakklandi.

Hræbillegt að skáskjóta sér eina helgi eða svo til Lyon og njóta.
Við mælum hiklaust með Lyon til stúss og ráðagerða við hvers kyns tilefni. Ekki aðeins er hún franskari en fransbrauð heldur og líflegri en flestar borgir Frakklands. Þetta er líka höfuðborg Gaulverja og það komast ekki allir Frakkar í þann flotta flokk með Ástríki og Steinríki og mörgum öðrum þekktum fígúrum í broddi fylkingar.
Ekki heldur skemmir neitt fyrir að Lyon er pínulítið ódýrari heimsóknar en hin vinsæla París og pínulítið þægilegri hvað ferðamannafjölda varðar en Marseille og aðrir strandbæir og borgir við Miðjarðarhafið.
Síðast, en ekki síst, er Wow Air að selja sín síðustu sæti til borgarinnar á heilar 6.998 krónur með sköttum og gjöldum bæði fram og aftur. Sem vitaskuld þýðir að borgarferð hingað kostar manninn ekki nema fjórtán þúsund krónur í heildina ef enginn innritaður farangur fylgir með.
Það er borgarferð sem borgar sig.







