V ið hér hjá Fararheill fáum reglulega fyrirspurnir frá fólki sem er að rekast á vef okkar fyrsta sinni og undrast skrif okkar eða efnistök. Það er því mál til komið að svara þeim spurningum sem við fáum hvað oftast.

Hvers vegna höldum við úti Fararheill?
Landinn almennt þekkir illa eða ekkert rétt sinn gagnvart fyrirtækjum sem var ávallt ein meginforsenda þess að við stofnuðum Fararheill árið 2009. Það var jú ekki eins og stjórnvöld, félagasamtök eða fyrirtækin sjálf væru að benda mikið á rétt okkar heilt yfir.
Landinn þekkti heldur ekki að innlendar ferðaskrifstofur og flugfélög hafa löngum heimtað tvöfalt til áttfalt hærra verð fyrir flug og pakkaferðir en gerist og gengur í þeirri álfu sem við teljum okkur tilheyra. Það er ekki langt síðan mörgum fannst það algjört súperverð að komast í vikutíma til Mallorca með innlendri ferðaskrifstofu niður í 150 þúsund krónum á mann. Í dag þykir okur að greiða hærra en 100 þúsund á kjaft fyrir svoleiðis dúllerí.
Öldin önnur nú sex árum síðar. Dyggir lesendur okkar eiga nú að þekkja nokkuð vel rétt sinn í flugi og á ferðum ef eitthvað bjátar á og þeir vita flestir líka að þrátt fyrir að tilboð ferðaskrifstofa hérlendis hafi tekið stökkbreytingum til hins betra er enn töluvert verið að okra á okkur. Það engin tilviljun að mörg flugfélögin eru nú farin að bjóða bætur strax eftir leiðinlegt flug eins og Wow Air, Primera Air og fleiri eru nú farin að gera reglulega þegar eitthvað bjátar á. Það er Fararheill að þakka enda enginn annar bent almenningi reglulega á að við eigum rétt gagnvart þessum milljarða-fyrirtækjum. Sterkan rétt og töluverða fjármuni líka ef flug og ferðir eru ekki í takti við auglýsingar fyrirtækjanna.
Ekkert að þakka 🙂
SPURT ER: Hvers vegna er Fararheill svo gagnrýninn vefur?
SVAR: Vegna þess að okkur ofbauð, og ofbýður enn, um margra ára skeið hve innlend ferðaþjónustufyrirtæki og flugfélög sýndu viðskiptavinum sínum lítilsvirðingu. Lítilsvirðingu með verðlagningu, lítilsvirðingu í þjónustu og lítilsvirðingu þegar við töldum á okkur hallað á flugi og í ferðum.
SPURT ER: Hvers vegna að nafngreina eigendur eða stjórnendur fyrirtækja sem níðast á viðskiptavinum sínum?
SVAR: Vegna þess að hitt virðist ekki virka. Ekki batnar þjónustan hjá Icelandair og hún fer mjög versnandi hjá Primera Air og Wow Air. Með því að persónugera mínusana er kannski oggulítill séns að gullkálfar þessara fyrirtækja taki málin persónulega. Fátt þola stjórnendur verr en að heyra nafn sitt í samhengi við skítlega þjónustu eða græðgi. Þess utan er fyrirtæki ekkert annað en fólkið sem þar situr og stjórnar.
SPURT ER: Hvers vegna að halda úti vef eins og Fararheill?
SVAR: Vegna þess að það er komið nóg af svo vondu. Enginn, hvorki stofnanir, samtök né fjölmiðlar, bendir fólki á þá fjölmörgu mínusa sem geta fylgt því að eiga viðskipti við ferðaskrifstofur og flugfélög. Þeir aðilar hafa fengið frítt spil gagnvart neytendum um ár og aldir. En við vitum sem er að engu fyrirtæki líkar að fá neikvæða umsögn og það fá fyrirtækin sannarlega hér hjá okkur ef ástæða þykir til.
SPURT ER: Tóm neikvæðni virðing aðalsmerki Fararheill. Það varla til framdráttar?
SVAR: Sá sem heldur að við dúndrum út níðandi efni eins og við betur getum hefur alls ekki fylgst með okkur. Þó við bendum mjög gjarnan á níðingshátt fyrirtækja í ferðabransanum eru líka um fjögur þúsund greinar um hið dásamlega vítt og breitt um heiminn og stöku sinnum og flotta frammistöðu innlendra ferðaskrifstofa og flugfélaga.
SPURT ER: Hvað græðið þið á að halda úti vef eins og Fararheill?
SVAR: Ánægjuna af því að benda fólki á spennandi hluti, spara fólki tug- og jafnvel hundruð þúsunda króna, ýta undir ferðalög og stundum fá símtal eða skeyti þar sem okkur er þakkað fyrir að viðkomandi fann sinn stað í lífinu, fékk tugþúsunda bætur sem annars hefði ekki skilað sér eða þakkarskeyti fyrir eitt og annað annað. Peningalega græðum við ekkert, höfum aldrei gert og það aldrei ástæðan fyrir vefnum. Hins vegar hjálpar okkur með kostnað þegar hliðhollir bóka gistingu gegnum okkar vef. Við fáum örlitla prósentu af þeirri bókun.
Takk fyrir að lesa og vonandi njóta 🙂







