Hundrað og fimmtán þúsund krónur fyrir flug fram og aftur til Nice. Það var „megatilboð“ Icelandair, sama flugfélags og þykist hafa stutt íslenska landsliðið í knattspyrnu um sex hundruð ára skeið eða svo, til þeirra sem vildu gjarnan styðja landsliðið gegn Englandi á mánudagskvöld.

Icelandair þykist styðja landsliðið okkar. En stuðningsmenn landsliðsins mega kaupa ferðir á ofurprís til Frakklands. Skjáskot
Hundrað og fimmtán þúsund krónur er húrrandi okur í öllum skilningi fyrir flug til Nice og heim aftur og því vaknar spurningin hvað flugfélagið ætlar að krefja þær þúsundir til viðbótar sem nú vilja til Frakklands til að styðja landsliðið gegn heimamönnum í átta liða úrslitum? Tvö hundruð þúsund? Fimm hundruð þúsund?
Kannski sitjandi forseti, sem skreytt hefur brjóst framkvæmdastjóra Icelandair, feitum krossi fyrir að vera merkilegur maður, gefi framkvæmdastjóranum kannski örlítið tiltal. Nægilega mikið til að flugfélagið, sem enn er að hluta í eigu lífeyrissjóða landsmanna, heimti ekki milljónir króna fyrir að flytja landann til Parísar til að taka þátt í gleðinni á EM.
En eflaust er það til of mikils mælst. Eins og Icelandair hafi nokkurn tímann haft áhyggjur af því að níðast á landanum. Fara varla að byrja á því nú.
Því ráð að benda áhugasömum á að til Parísar er einnig komist með Wow Air og Transavia í beinu flugi héðan. Það sennilega töluvert ódýrara en með frekjudollunum hjá Icelandair 🙂







