Allra ólíklegasta fólk er nú svo heltekið af fótboltabakteríunni að geðdeild LSH íhugar að opna sérstaka neyðardeild meðan Ísland er enn meðal keppenda á EM.

Enskir hafa verið til vandræða meira og minna allt Evrópumeistaramótið hingað til. Skjáskot
En grínlaust þá er afrek strákanna stórt og mikið og breyta úrslit í leiknum við England þar engu um. Fjölmargir þeirra tíu til fimmtán þúsund Íslendinga sem sáu leikinn í París þegar Ísland vann Austurríki blóta nú í sand og ösku fyrir að hafa ekki séð gott gengi fyrir og bókað lengra frí. Sömuleiðis eru nú þúsundir Íslendinga heimafyrir sem hafa eytt síðustu klukkustundum að finna flug og hótel í Nice og negla miða á þann leik á mánudagskvöldið.
Án þess að vilja draga úr gleði nokkurs er þó eitt sem ágætt er að muna áður en haldið er til Nice: Enskar boltabullur.
Þótt skorist hafi í odda með stöku Íslendingum og Ungverjum fyrir leik þessara þjóða eru Ungverjarnir ekki þekktir fyrir stóra hópa stuðningsmanna sem gera út á læti og slagsmál fyrir og eftir leiki. Það eru Englendingar hins vegar og það velþekktir. England meira að segja þegar fengið viðvörun vegna óláta stuðningsmanna sinna í Frakklandi.







