Fjölmargar fínustu upplýsingar er að finna á breyttum og bættum vef flugleitarvefsins Dohop eins og við höfum fjallað um áður. Þar má til dæmis sjá að jafn mikið kostar að skjótast í 50 mínútur til Akureyrar frá Reykjavík og til Edinborgar frá Keflavík. Hvor ætli sé nú meira spennandi…

Hvor er meira spennandi fyrir helgarferð á sama pening? Skjáskot
Með virðingu fyrir annars ágætri Akureyri þá er sá bær óttalegt krummaskuð í samanburði við heimsborgir á borð við Edinborg í Skotlandi. Samkvæmt Dohop kostar gróflega jafn mikið að taka helgarpakkann á Akureyri og í Edinborg ef fólk flýgur frá höfuðborgarsvæðinu miðað við lægsta verð sem finnst á flugi næstu mánuðina.
Sem segir ekki endilega að það sé sérstaklega ódýrt að fljúga til Edinborgar heldur fremur að álagning á flugi til Akureyrar sé kannski vel fram úr hófi. Það er jú ekki eins og flugtími til hins norðlenska höfuðstaðar sé um 50 mínútur meðan flugið út til Edinborgar tekur að minnsta kosti tvær klukkustundir og 20 mínútur að auki. Í ofanálag er flugið til Edinborgar með alvöru þotu en til Akureyrar með litlum og þröngum Bombardier hreyflavélum.
Hvernig má það vera að allra lægsta verð aðra leið til Akureyrar frá Reykjavík kosti rúmar sextán þúsund krónur AÐ LÁGMARKI þegar hægt er að komast fram og aftur til London frá Keflavík fyrir sama pening?
Svarið auðvitað einokunarrisinn Flugfélag Íslands, dótturfélag Icelandair, hvers forstjóri spásserar um bæ með riddarakrossinn frá Óla Grís á brjóstinu fyrir frábær störf í þágu mannkyns.
Á sama tíma komast Norðmenn milli Bergen og Oslóar (50 mínútna flugtími) með þremur flugfélögum daglega undir tíu þúsund íslenskum krónum aðra leið, Hollendingar og Belgar fljúga milli Brussel og Amsterdam fyrir rúmlega tíu þúsund kallinn (klukkustund og tíu mínútur á leiðinni) og Kanadamenn þvælast milli Toronto og Montreal (klukkustund og 15 mínútur) aðra leið fyrir svipaðan pening svona heilt yfir á almennu fargjaldi.
Eitthvað er rotið við verðlagningu Flugfélags Íslands.







