Allra lægstu fargjöld Wow Air fram og aftur til Los Angeles í Kaliforníu frá Keflavík eru á pari við lægstu fargjöld flugfélaganna Norwegian og SAS frá Osló í Noregi.

Þrátt fyrir miklu styttra flug krefur Wow Air að lágmarki þess sama og sé flogið frá Noregi. Samsett mynd
Athugun á vef Wow Air leiðir í ljós að til Los Angeles kostar að lágmarki 26 þúsund krónur án farangurs að fljúga út og aðeins meira að jafnaði að fljúga heim til baka frá gullna fylkinu. Fram og aftur vart komist undir 55 þúsund og þá með ekkert meðferðis.
Ekkert slæmt verð alla leið til Kaliforníu og fjarri því slæmt í samanburði við það sem boðist hefur Íslendingum hingað til. Þó með þeim formerkjum að lægsta verð Wow Air er næstum nákvæmlega sama og SAS og Norwegian bjóða best frá Osló og þar sömuleiðis án farangurs.
Einhver gæti spurt sjálfan sig hvers vegna Fararheill telur það vera merkilegt fréttaefni. Svarið liggur þó í augum uppi. Annar stærsti útgjaldaliður flugfélaga er eldsneytiskostnaður og því lengra sem flogið er því meira er brúkað af eldsneyti eðli máls samkvæmt.
Í því ljósi er Wow Air mun dýrari kostur en SAS eða Norwegian vegna þess að flugið til Los Angeles frá Osló er tveimur klukkustundum lengra en flugið frá Keflavík og vitaskuld til baka líka. Það munar í heildina rúmum fjórum klukkustundum á fluginu Wow Air í vil.
Ætti það ekki að endurspeglast í lægra verði ef allt væri með felldu? Sem það gerir ekki miðað við verðskrá Skúla Mogensen og félaga hjá Wow Air.







