Lengi má deila um léleg flugfélög enda sýnist sitt hverjum í þeim efnum. En flugfélag getur þó varla fengið verri útreið og bandaríska lággjaldaflugfélagið Allegiant.

Sennilega ráð að sleppa ferðum með þessu flugfélagi.
Alla jafna þykir það ákveðna flugfélag sorglega lélegt þegar að þjónustu kemur í hefðbundnum skoðanakönnunum vestanhafs. Það skilar þó arði enda margir sem leggja meira upp úr lágum fargjöldum en þjónustu.
En nú hefur komið upp úr kafinu könnun ein sem gerð var meðal flugmanna fyrirtækisins og átti aldrei að sjá dagsins ljós opinberlega. Það svokölluð ánægjukönnun og sökum þess hve flugfélagið fær hörmulega einkunn sinna eigin flugmanna hefur málið ratað í fjölmiðla vestanhafs.
Helsti fréttapunkturinn varðar að næstum helmingur flugmanna Allegiant „myndu ekki leyfa eigin fjölskyldumeðlimum að fljúga með vélum fyrirtækisins.“
Ekki lítið hörmuleg útkoma að flugmenn treysti ekki eigin flugfélagi. Ástæðan er hve viðhaldi er ábótavant að mati flugmanna og hve fyrirtækið keyrir vélar sínar hart.
Að líkindum hafa flugmennirnir rétt fyrir sér. Því lengur sem viðhald situr á hakanum á sama tíma og vélarnar eru keyrðar eins og mögulega er hægt er ávísun á alvarlegt slys og það sennilega fyrr en síðar.
Ágætt að hafa bak eyra ef þú ætlar að fljúga milli staða í Bandaríkjunum og þykir fargjöld Allegiant sérstaklega góð.







