Myndir segja þúsund orð. Og kannski, kannski verður þessi mynd til þess að þú hugsar þig tvisvar um áður en þú bókar gistingu gegnum hið „æðislega“ Booking.com. Þú veist, sama fyrirtæki og Icelandair og Dohop vilja gjarnan að þú verslir við.

Sama herbergi, sama þjónusta, sama tímasetning. En hið skattaskjólselskandi bandaríska fyrirtæki Booking vill mjög gjarnan fá 45 þúsund krónum meira fyrir en hótelið sjálft fer fram á.
Gerðu sjálfri/sjálfum þér greiða. Gerðu ALLTAF verðsamanburð á gistingu erlendis. Það einfaldast gegnum fimmfaldan heimsmeistara í greininni; hótelvef Fararheill hér að neðan 😉







