Kostakjör við hendina! Svo er fyrirsögn á neytendasíðu Fréttablaðsins um „frábært“ app frá bókunarvél Hotels.com. Það segir allt sem segja þarf um blaðamanninn því Hotels.com er ein allra dýrasta bókunarvél samtímans.

Eins og við höfum oft og ítrekað bent á getur verið ægilegur verðmunur milli bókunarvéla.

Eins og við höfum oft og ítrekað bent á getur verið ægilegur verðmunur milli bókunarvéla.

Eins og oft áður er ekki djúpt á blaðamennsku hjá Fréttablaðinu. Nema hugmyndin sé að fá fólk til að eyða tugþúsundum meira í gistingu en þörf er á. Sé það raunin er um blekkingar að ræða að flokka slíkt sem neytendavænt efni.

Við höfum áður fjallað um mikinn aukakostnað hjá Hotels.com. Þeir taka mjög háa þóknun af hótel- og gistihúsaeigendum sem auðvitað velta því beint aftur út í herbergisverðið ef tækifæri gefst.

En ekki taka okkar orð fyrir. Kíktu bara á meðfylgjandi skjáskot sem sýnir verð á gistingu hjá okkur hjá Fararheill annars vegar (vinstra megin) og sömu gistingu á sama tíma hjá Hotels.com (hægra megin) en öll dæmin eru tekin af handahófi.

Svo má velta fyrir sér hvað er að marka „neytendasíðu“ sem telur allra besta mál að fólk eyði miklu hærri upphæðum en þarf í gistingu erlendis.

[vc_single_image image=“233950763″ img_size=“770×330″ alignment=“center“ title=“H10 Villa de la Reina, Madríd 14. – 21. ágúst“][vc_single_image image=“233950766″ img_size=“770×330″ alignment=“center“ title=“Hotel Marlowe, Boston 12. – 16. október“][vc_single_image image=“233950768″ img_size=“770×330″ alignment=“center“ title=“Rixwell Palace Hotel, Ríga 1. – 5. desember“][vc_single_image image=“233950770″ img_size=“770×330″ alignment=“center“ title=“Seaview Patong Hotel, Tæland 16. – 30. júlí“]
[vc_separator]