Þrjár vikur eru liðnar síðan Fararheill skammaði ferðaskrifstofuna Nazar fyrir hálf aumingjalega afslætti á ferðum til Tyrklands í sumar. Sérstök páskatilboð rétt slefuðu í að vera skítsæmileg. Nú hefur ferðaskrifstofan þó tekið sönsum.

Löngu kominn tími til...

Löngu kominn tími til…

Undanfarnar vikur frá páskum hefur ferðaskrifstofan auglýst „útsölu“ á tilteknum ferðum sínum á tilteknum dagsetningum en sem kunnugt er sérhæfir Nazar Ísland sig í Tyrklandsferðum.

Við fundum töluvert að þeirri útsölu eins og lesa má um hér. Ekki síst vegna þess að í Evrópu hefur sala á Tyrklandsferðum dregist saman um helming hvorki meira né minna. Ástæðan er hryðjuverkaógn.

Þar sem verð hækkar alltaf duglega þegar eftirspurn er umfram framboð eiga neytendur skýran rétt á að verð lækki á móti þegar framboð er margfalt meira en eftirspurn. Eins og fyrir hefur legið varðandi Tyrkland allt þetta ár. En fyrirtæki er ekki spennt fyrir slíku réttlæti sem útskýrir hversu lengi Nazar hefur beðið með að henda ferðum á „risaútsölu“ eins og auglýst er núna.

Sjálfsagt að kíkja á vef þeirra og gera verðsamanburð. Ekki er útskýrt hver munurinn sé á „útsölu“ annars vegar og „stórútsölu“ hins vegar en ekki er ólíklegt að ferðir lækki frekar um fimm til tíu þúsund kall á kjaft.