Helstu fjölmiðlar landsins, Vísir og Morgunblaðið, birta tíðindi þess efnis að flugfélagið Wizz Air ætli að bæta við beinu flugi milli Íslands og Vilníus í Litháen í vetur. Báðir vitna í ferðavef túrista sem er þó tveimur vikum á eftir okkur með þessar fregnir.
Ekki sama Jón og séra Jón og það ekkert breyst frá aldaöðli á klakanum.
Ekki þar fyrir að þetta skipti neinu meginmáli per se. Fjölmiðlar hérlendis hafa löngu gleymt þeirri óskrifuðu reglu í fréttamennsku að það sem gerist oft er sjálfkrafa ekkifrétt. Það mörg flugfélög bjóða nú ferðir til og frá landinu og við bætast nýir áfangastaðir í hverjum mánuð að slíkt er einfaldlega auglýsing.
Það er hins vegar hlutverk ferðamiðla að benda fólki á hvort ný flugleið gefur færi á einhverju spennandi og við þegar bent fólki á hvernig nýta má sér þessar ferðir Wizz Air til að komast hræódýrt í aðventuferð eins og lesa má um hér.








