Réttir dagsins eru eftirfarandi: Antalya í Tyrklandi fyrir 4.500 krónur, Korfu í Grikklandi fyrir 6.800 krónur, Lissabon í Portúgal fyrir 6.800 krónur og Mallorca á Spáni fyrir 6.800 krónur.
Ekki alveg á pari við verðlagningu hér heimavið en engu að síður nokkur af skynditilboðum norska flugfélagsins Norwegian frá Osló næstu mánuðina. Sólarhringur er til stefnu ef þú hefur þolinmæði til að millilenda í norsku höfuðborginni áður en þú heldur áfram.
Hér auðvitað um aðra leið að ræða án farangurs og á tilteknum dagsetningum en engu að síður flott boð og sé fólk ekki of njörvað niður með dagsetningar eða staði er alveg tilvalið að skottast til Osló til að nýta sér slík fargjöld. Aukabónus að milli Íslands og Noregs er yfirleitt heldur ekki dýrt að fljúga.
Sjálfsagt að skoða þetta hér fyrir áhugasama.








