Á vafri okkar um ferðanetheima þennan daginn höfum við dottið um tvennt sem við teljum að landar vorir gætu haft not af.
Enginn fær verðlaun fyrir að giska á hvert flugfélagið Airbaltic flýgur. Líklega er fólki ekki jafn heitt í hamsi að heimsækja Ríga, Tallinn eða Vilníus og Barcelóna og Róm en fyrir þá sem áhuga hafa er óvitlaust að kíkja á vef Airbaltic. Þar nefninlega tilboðsvika í gangi og hlægilegt verð í boði til og frá þessum stöðum og fleirum. Til dæmis flug til Ríga í Lettlandi frá Osló í Noregi aðra leiðina án farangurs fyrir heilar 2.700 krónur. Meira um þetta hér.
Hitt kannski fer meira í hjartastað fólks sem elskar Miðjarðarhafið. Flugfélagið Vueling er einnig að bjóða ágæta afslætti á ýmsum flugferðum sínum. Þannig getur fólk með tíma til að eyða í Alicante, Barcelóna eða Madríd hent sér yfir hafið til Mallorca eða Ibiza aðra leið án farangurs fyrir litlar 3.600 krónur. Nú eða skottast til Bilbao í Baskalandi fyrir rúmar fimm þúsund krónur og svo má lengi telja. Allt um það hér.
Svo vantar þig auðvitað gistingu á þessum nýju fersku stöðum sem þú varst að finna á tilboði 🙂








