Sikiley er að öllu leyti dásamleg að frátalinni hinni viðurstyggilegu mafíu sem enn ræður víst flestu hér um slóðir. Með haustinu er aldeilis hægt að njóta þar fyrir tiltölulega lítinn pening.

Ítalskt já takk. Gamla klaustrið sem nú er fjögurra stjörnu hótel.

Ítalskt já takk. Gamla klaustrið sem nú er fjögurra stjörnu hótel.

Vefmiðilinn Secret Escapes er núna að bjóða upp á vikulangan túr til Sikileyjar þar sem gist er í gömlu munkaklaustri sem fært hefur verið til nútímans og gortir nú af heilum fjórum stjörnum. Ekki nóg með að deila vistarverum munka sem nú eru í himnaríki ef allt hefur gengið að óskum heldur er hálft fæði með í pakkanum og hér er þessi fíni golfvöllur líka. Já og bílaleigubíll líka.

Hótelið er nett í sveit sett sem er stór plús því það eru sveitir Sikileyjar sem án alls vafa er yndislegasti hluti eyjunnar. Ekki þó of langt í hina ágætu borg Syracusa eða Catania ef sú fyrrnefnda þykir of lítil.

Ferðirnar eru í boði frá London og nánast út árið en lægsta verðið fæst þegar dregur að hausti í lok september og byrjun október. Þann tíma má dvelja hér niður í 133 þúsund krónur plús flugið frá Íslandi til London og heim aftur. Með svo löngum fyrirvara er lítið mál að græja það flug niður í 20 til 25 þúsund á mann og þannig er Sikileyjarpakkinn þinn fyrir um 160 þúsund krónur á haus miðað við tvo saman.

Það er súperfrí á dúndurverði ef þú spyrð okkur. Meira hér.