Hér er eitt trix sem gæti sparað þér töluverða fjármuni ef þú ert að bóka gistingu erlendis gegnum vinsælar hótelbókunarvélar. Slepptu alveg fyrstu tveimur til þremur síðunum sem upp koma.

Þeir gististaðir sem birtast á fyrstu síðum Booking greiða sérstaklega fyrir þann munað.

Þeir gististaðir sem birtast á fyrstu síðum Booking greiða sérstaklega fyrir þann munað.

Ekki halda í eina sekúndu að risarnir í hótelbókunarbransanum, vefir á borð við Booking, TripAdvisor, Expedia og Priceline séu virkilega að sýna þér bestu hótelin, ódýrustu hótelin eða hótel sem best bjóða kjörin á fyrstu síðum þegar leitað er að gistingu. Nei, hér er verið að fiffa eins og víðar í viðskiptaheimum.

Fiffa í merkingunni að undantekningarlítið eru þau hótel eða gististaðir sem fyrst koma upp við leit að gistingu staðir sem greitt hafa sérstaklega fyrir að vera efst á blaði.

Þetta skiptir öllu máli því markaðsrannsóknir hafa ítrekað sýnt að langflestir þeir sem leita að gistingu gegnum hótelbókunarvélar leita ekki mjög lengi. Samkvæmt stúdíu markaðsrannsóknarfyrirtækisins Accenture leita 64 prósent fólks ekki lengra aftur en þrjár síður þegar bóka á gistingu.

Þetta vita risarnir og heimta aukaþóknun fyrir staðsetningu á þeim slóðum. Sem auðvitað þýðir að ef fólk hefur þolinmæði má nánast bóka að þú finnur eitthvað betra eða á lægra verði nema bæði sé ef flett er lengra en á fyrstu síðum. Það gildir hvort sem þú leitar án skilyrða eða með skilyrðum.

Annaðhvort það eða nota hótelbókunarvél Fararheill, fimmfaldan heimsmeistara samkvæmt World Travel Awards, sem EKKI beitir þessari tækni 😉