„Og það sem er jákvætt við þetta, ef maður getur sagt að eitthvað sé jákvætt við þetta, að flugöryggiskerfi flugiðnaðarins greip inn í þann hátt að vélarnar voru stoppaðar af fyrir einu og hálfu ári síðan.“

365 manns létu lífið af því að forráðamenn Boeing vildu ekki eyða of miklum peningum við hönnun Boeing Max.
Hmmm!
Hvað er jákvætt við að flugvélaframleiðandi setur snargallaðar Boeing Max rellur á markað með þeim afleiðingum að 365 einstaklingar létust með einhverjum hörmulegasta hætti sem hægt er að ímynda sér?
Flugöryggisstjóri Icelandair í viðtali við Vísi segir frábært að „flugöryggiskerfi flugiðnaðarins” hafi takmarkað mannslát við aðeins 365 manns fyrir rúmu ári síðan eins og lesa má um hér.
Sennilega sami flugöryggisstjóri og sagði fyrsta flugslys Boeing Max tóma tilviljun og mælti áfram með flugi í denn tíð eins og framleiðandinn sjálfur . Sami flugöryggisstjóri og telur 365 mannslíf bara lágmark til að ný þota fái flugrekstrarleyfi. Flugöryggisstjóri sem veldur alls ekki starfi sínu…







