Svo virðist sem að hérlend flugfélög séu að mestu farin að sætta sig við úrskurði Samgöngustofu í þeim tilvikum þegar viðskiptavinum þeirra eru dæmdar skaðabætur. Aðeins tvær kærur vegna slíkra mála fóru alla leið í innanríkisráðuneytið á síðasta ári.

Aðeins Wow Air fór alla leið til innanríkisráðuneytisins til að koma í veg fyrir að fyrirtækið þyrfti að greiða bætur á siðasta ári
Fyrir þá sem ekki þekkja feril kærumála á hendur flugfélögunum af hálfu neytenda þá er lokaskrefið jafnan að leggja fram kæru og kröfu um bætur í skaut sérstakrar nefndar Samgöngustofu. Þar funda menn um málið, reyfa rök til og frá og ákvarða bætur ef ástæða þykir til.
Séu flugfélögin ósátt við niðurstöðu nefndar Samgöngustofu hafa fyrirtækin möguleika að kæra niðurstöðuna og leggja fyrir einn eina nefndina, að þessu sinni í innanríkisráðuneytinu. Þar úrskurður Samgöngustofu annaðhvort staðfestur endanlega eða sakir felldar niður eftir atvikum.
Miðað við hve íslensku flugfélögin hafa haft allnokkuð fyrir því hin síðari ár að hafna alfarið öllum slíkum kröfum viðskiptavina sinna er eðlilegt að álykta sem svo að þau reyni til þrautar að firra sig bótakröfum og fari með málin eins langt og hægt er sem í þessu tilfelli er innanríkisráðuneytið.
Nú horfir svo við hins vegar að einungis tvær kærur fóru alla leið þangað og voru teknar fyrir árið 2015. Báðar frá Wow Air. Flugfélagið tapaði báðum.
Þetta er afar jákvæð þróun fyrir alla málsaðila. Úrskurðir Samgöngustofu eru ekki byggðir á sandi og lítil ástæða til að eyða tíma og peningum til að komast hjá því að greiða einhverja tugi þúsunda í bætur. Sem er klink fyrir flugfélög sem raka inn seðlum eins og Jóakim Aðalönd á sterum þessa síðustu og verstu. Það líka neikvætt gagnvart viðskiptavininum að upplifa að flugfélag berst á hæl og hnakka til að viðkomandi fái ekki eina krónu í sinn hlut. Sanngirni vinnur alltaf daginn og hver veit nema umræddur viðskiptavinur muni einn góðan veðurdag bóka flug á nýjan leik með flugfélagi sem sýnir lit.







