Sé langur og óvenju harður veturinn að gera út af við þig er snjallræði að bregða sér inn á vef Wow Air. Flugfélagið að bjóða djúsí verð á flugi hingað og þangað.

Fínustu tilboð með Wow Air hingað og þangað í sölu núna
Þetta er kallað hlaupárstilboð og meðan það varir er hægt að negla flug aðra leið niður í 8.028 krónur og þar með taldar ferðir til Köben og London svo fátt sé til nefnt. Sömuleiðis eru tilteknar ferðir til Kanarí á lægra verði en gengur og gerist og þangað komist aðra leið fyrir 12.028 krónur á stöku dagsetningum.
Gott hjá Wow Air. Safi í þessum tilboðum þeirra og þegar flug til sólbakaðra Kanaríeyjanna fæst fyrir tólf þúsundkalla áttu ekki neinar afsakanir eftir. Drífa sig.







