Var ekki nýársheitið einmitt að gera aðeins betur við sjálf okkur en á síðasta ári? Við höfum jú takmarkaðan tíma á þessari jörð og hver veit hvenær óvelkomnir gestir á borð við krabbamein, liðagigt eða alzheimer banka upp á og gera lífið erfitt.

Jú, þessi dallur sleppur 🙂
Ein hugmynd fyrir þá sem það heit strengdu gæti verið tveggja vikna skemmtisigling frá Tampa Bay í Flórída alla leið til Barcelóna á Spáni með viðkomu á Madeira, Malaga, Cartagena svona í og með á leiðinni. Prísinn á mann? Gróflega um það bil 160 þúsund krónur í innriklefa að flugi meðtöldu.
Það er ekki upphæð sem meðal launþegi á Íslandi ætti að setja fyrir sig fyrir tveggja vikna dúndurpakka. Pakka sem má lengja í hvorn endann sem er með dvöl á Flórída fyrirfram ellegar dvöl í Barcelóna eftirá. Eða bæði 🙂
Slíkur pakki er í boði núna hjá ferðamiðlinum Cruise.co.uk í Bretlandi en aðeins er um eina siglingu að ræða og lagt úr höfn frá Tampa Bay þann 16. apríl. Sem merkir að þú þarft að koma þér á eigin spýtur til Flórída og á eigin spýtur frá Barcelóna og góðu heilli eru áætlunarflug til beggja staða frá Íslandi. Icelandair flýgur til Orlandó og á vef flugfélagsins fæst flug aðra leið niður í 40 þúsund krónur. Wow Air og Vueling fljúga til Íslands frá Barcelóna og fargjaldið þegar þetta er skrifað fæst niður í 18 þúsund án farangurs.
Svo má finna sérdeilis góða díla á gistingu á hótelvef okkar hér að neðan og þannig skapa þessa líka dýrindis lúxusferð fyrir lítinn pening svona miðað við hvað skemmtisiglingar kosta gegnum ferðaskrifstofur heima.
Allt um siglinguna hér.







