Gamlir rokkhundar geta nú loks risið úr rekkju á ný og tekið gleði. Hin fornfræga hljómsveit Def Leppard sem var ein sú allra vinsælasta á áttunda áratug síðustu aldar hefur vaknað til lífsins á ný og það á skemmtiferðaskipi af öllum stöðum.
Hljómsveitin atarna mun troða upp nokkrum sinnum á fjögurra daga rokkfestivali sem fram fer um borð í einu skemmtiferðaskipi MSC skipafélagsins meðan siglt er rólega um Karíbahaf. Skipið, góðu heilli, töluvert yngra en hljómsveitarmeðlimir sem eru farnir að skjaga í sjötugt sumir hverjir.
Engu að síður tækifæri til að slá tvær flugur í einu höggi. Fljóta um ljúfar eyjar Karíbahafs og taka svo rokkarann á þetta þegar líða fer á kvöld um borð. Óhætt að gera ráð fyrir litlum svefni og litríku samferðafólki.
Hér þarf hraðar hendur því skipið lætur úr höfn frá Miami 21. janúar. Fjögurra daga túrinn kostar manninn að lágmarki 120.000 krónur miðað við tvo saman í innri káetu. Plús auðvitað kostnaður við að koma sér til Miami.
Kannski þess virði fyrir eldheita aðdáendur. Meira hér.








