Hin gamalkunnu flugfélög British Airways, Lufthansa og SAS nota mest eldsneyti per farþega og menga þar af leiðindi mest flugfélaga sem fljúga yfir Atlantshafið.

Enginn kemst með tærnar þar sem British Airways hefur hælana hvað mengun varðar. Mynd Pieter van Marion
Ágætt að fá þær upplýsingar fyrir þau okkar sem er ekki alveg sama hvort hreint loft verður í boði á hnettinum eftir 50 ár.
Upplýsingarnar koma frá stofnun sem kallar sig International Council on Clean Transportation sem útleggst sem Alþjóðaráð um hreinar samgöngur á hið ylhýra. Samtökin gerðu úttekt á eldsneytisnotkun allra flugfélaga sem fljúga áætlunarflug yfir Atlantshafið og í ljós kemur að miklu munar á eldsneytisnotkun flugfélaga en notkunin tengist eðlilega útblástri þeirra og mengun.
Það er norska lággjaldaflugfélagið Norwegian sem stendur sig allra best og standa næstu flugfélög, Airberlin og Aer Lingus, þeim norsku töluvert að baki eins og sjá má á töflunni hér að neðan. Wow Air er ekki með í úttekt þessari en það er Icelandair sem endar í 9. sætinu ásamt Delta Airlines.
Bent er á í skýrslunni að meginþáttur meiri eyðslu áætlunarvéla sé hversu mörg sæti séu um borð og hvernig þeim er skipt. Það er að segja að ástæða þessa að SAS, British Airways og Lufthansa koma afar illa út, um 50 prósent meiri eyðsla per farþega en Norwegian, er hversu stór viðskiptafarrými þessir aðilar bjóða upp á. Þar fer vel um alla enda nóg pláss. Til samanburðar er ekki viðskiptafarrými í öllum vélum Norwegian en í þeim sem það hafa er það lítill hluti farþegahlutans.








