Tvær alvarlegar árásir villimanna hins íslamska ríkis á almenna borgara í París í Frakklandi hafa stóraukið áhyggjur Frakka og skipuleggjanda Evrópukeppninnar í knattspyrnu en sú fer fram í landinu næsta sumar.

Geta Frakkar tryggt öryggi allra sem sækja EM heim næsta sumar? Mynd ePic
Formaður franska knattspyrnusambandsins hefur í viðtali við franska blaðið L´Equipe þegar lýst þungum áhyggjum, ekki síst þar sem eitt skotmark hryðjuverkaárásanna í gærkvöldi var sá mannfjöldi sem var fyrir utan þjóðarleikvanginn Stade de France þegar vináttuleikur Frakka og Þjóðverja fór þar fram.
Leikmenn sömuleiðis eru ekki lausir við áhyggjur vegna hryðjuverkanna og stöku leikmenn eins og ítalski landsliðsmaðurinn Leonardo Bonucci varpað fram þeirri spurningu hvort keppnina eigi að halda í Frakklandi. Þeim áhyggjum deilir landsliðsþjálfari Ítala, Antonio Conti.
Þá hefur landsliðseinvaldur Þjóðverja, Joachim Low, viðurkennt að hann og þýsku leikmennirnir, hafi verið á nálum fyrir vináttuleikinn í gærkvöldi. Sprengjuhótun hafði borist frönskum yfirvöldum fyrr um daginn og þýska knattspyrnusambandið látið vita af þeirri hótun.
Evrópukeppnin á að fara fram í tíu mismunandi borgum Frakklands næsta sumar og ljóst má vera að Frakka bíður það erfiða verkefni að ákveða hvort landið geti haldið keppnina og tryggt öryggi allra á sama tíma. Sem er nánast vonlaust verk nú þegar hið íslamska ríki hefur sett sjálfsmorðssprengingar á oddinn. Að stöðva allt slíkt í milljóna manna borgum er næsta ógerlegt.







