Þá kom loks að því sem Fararheill hefur varað við lengi. Sökum þess hve innlendar ferðaskrifstofur eru seint á ferð með sumarleyfisferðir sínar er hægt að ganga út frá því sem vísu að sólarferðin til Kanaríeyja næsta sumar verði töluvert dýrari en verið hefur.

Fastsetja má að dvölin á Tenerife næsta sumarið verði dýrari en nú er. Mynd dartisan
Lesendur okkar kannast við þetta. Íslenskar ferðaskrifstofur byrja ekki að bjóða sólarpakkana fyrir næsta sumar fyrr en um og eftir áramótin og jafnvel ekki fyrr en í febrúar eða mars.
Það er fjórum til fimm mánuðum síðar en slíkar ferðir koma í sölu hjá erlendum ferðaskrifstofum. Nett úttekt Fararheill leiðir í ljós að hægt er að negla ferðapakka á suðrænar slóðir sumarið 2016 nú þegar í Danmörku, Svíþjóð, Noregi, Bretlandi, Frakklandi og Þýskalandi. Fyrir vikið fæst slík ferð yfirleitt á lægra verði því erlendis er fólk verðlaunað fyrir forsjálni og auðvitað að láta peninga af hendi mörgum mánuðum áður en það fær vöruna í hendur. Það er alltaf góður díll fyrir þjónustuaðila.
Allt þetta er ekkert nýtt. Hvers vegna er Fararheill að hoppa upp til handa og fóta núna? Tvö orð: Túnis og Egyptaland.
Báðir staðir hafa verið vinsælir áfangastaðir sólþyrstra Evrópubúa undanfarin ár og áratugi. Túnis er að mestu búið að vera sem ferðamannaland eftir hryðjuverkaárásir í sumar og haust. Der Spiegel greinir frá því að ferðafólki hafi fækkað þar um 75 prósent.
Og nú bætist Egyptaland í hópinn eftir líklega hryðjuverkaárás á þotu rússnesks flugfélags. Ferðafólki var búið að fækka töluvert í landinu vegna óróa almennt en ekki svo mikið við Rauðahafið á stöðum eins og Sharm el Sheikh. En nú verður næsta örugglega breyting þar á. Hræðsla við hryðjuverk, hvort sem það er raunin eður ei, mun halda mörgum frá Rauðahafinu á næstunni.
Hvert heldur fólk þá til að komast ódýrt í sól og sælu næsta sumar og finna öryggi í leiðinni?
Slá má föstu að margir þeirra sem hafa sólað sig í Túnis og Egyptalandi síðustu árin haldi nú líka til Spánar og Portúgal í mun meira mæli en verið hefur. Og hér er verið að tala um milljónir aukalega í viðbót við þá sem alltaf halda til Spánar eða Portúgal. Vart þarf að útlista hvað gerist á ferðamannastöðum þegar eftirspurn snareykst á skömmum tíma.
Ein leið til að tryggja sig aðeins gegn hærra verði er að negla flug og hótel á eigin spýtur og það fyrr en síðar. Hvað flug varðar erum við nokkuð vel sett. Wow Air og Primera Air fljúga reglulega til Kanaríeyja allt næsta sumar og þegar í boði að kaupa flug til Tenerife hjá báðum aðilum fram á sumar. Flugið mun ekki hækka svo ört héðan frá Íslandi alveg á næstunni.
Öðru gildir um gistingu, sérstaklega á vinsælum stöðum eins og Maspalomas eða Costa Adeje, enda takmarkað úrval hótela og gististaða. Fararheill mælir með að fólk skoði hótelbókunarvef okkar hér að neðan og bóki sem allra fyrst. Finni svo flug sem passar í rólegheitum.







