Heimþrá Íslendinga erlendis er sjaldan eða aldrei meiri en um jólahátíðina sem senn fer í hönd í enn eitt skiptið og það þó aðeins séu um það bil fimm mínútur frá því við vorum að henda síðasta jólatré á haugana. En hvaða flugfélag er að koma okkur heim á sem lægstu verði?
Það er vissulega ekki svo lengur að Íslendingar erlendis þurfi endilega að koma sér til London frá flestum öðrum löndum Evrópu til að komast í flug beint heim. Nú er flugúrvalið töluvert meira og betra. Engu að síður völdum við túr/retúr frá London að þessu sinni til að fá hugmynd um kostnaðinn við heimför fyrir jól og aftur út eftir jól.
Til stóð að skoða sérstaklega verðlag með tilliti til að nú eru fjögur flugfélög í samkeppni milli London og Keflavíkur: Wow Air, easyJet, British Airways og Icelandair.
Eins og sjá má á töflunni hér að neðan er Wow Air að bjóða lægsta verð. Það stendur þó aðeins ef enginn er farangurinn og þar sem fólk er að koma heim fyrir gjafahátíð má fastlega gera ráð fyrir farangri hjá velflestum. Sé einni tösku hent með er það Icelandair sem býður lægsta verð fram og aftur þegar þetta er skrifað. Bresku flugfélögin eru bæði töluvert dýrari en þau íslensku.
* Leitað að lægsta fargjaldi kl. 10.00 þann 27. október báðar leiðir milli 15. desember og 10. janúar með einni tösku hjá öllum aðilum. Dagsetningar örlítið mismunandi en allar á þessu tímabili. Hafa skal í huga að verðbreytingar hjá flugfélögunum eru mjög örar og verð fyrir jólahátíðina munu hækka skarpt hér eftir.








