Það er eins og svo víða annars staðar; það dugar ekki Airbnb að hafa grætt milljarða króna á skömmum tíma með því að auðvelda Jóni og Gunnu að leigja út íbúðina sína. Nú er fyrirtækið að bæta við íbúðum í eigu fyrirtækja.

Stóraukin hlutdeild Airbnb á leiguíbúðamarkaðnum

Stóraukin hlutdeild Airbnb á leiguíbúðamarkaðnum

Það hefur lítið farið fyrir því en nú má finna á vef Airbnb, sérstaklega sé leitað vestanhafs í Bandaríkjunum, íbúðir í eigu fyrirtækja.

Með því er fyrirtækið að taka nokkuð skarpa u-beygju frá upphaflegu markmiði sínu. Það markmið var einmitt að auðvelda íbúðaleigu og íbúðaskipti milli einstaklinga með það að markmiði að lækka gistikostnað ferðafólks sem annars þurfti að leigja hótelherbergi ellegar íbúðir hjá leigumiðlunum öðrum.

Nú eru hins vegar þessar sömu íbúðir leigumiðlara að koma inn í safn Airbnb og væntanlega á sama eða svipuðu verði og þótti of dýrt þegar fyrirtækið hóf starfsemi. Þannig má segja að Airbnb sé að verða hefðbundin leigumiðlun með frítímahús á borð við Villarenters eða ClickStay. Verra þó að sökum velgengni Airbnb hefur fyrirtækið mikla fjármuni milli handanna og hefur notað hluta þess til að kaupa upp heilu leigumiðlanirnar eins og Travelmob.

Þetta mun fjölga gistikostum til muna með tíð og tíma sem er í sjálfu sér jákvætt en í ljós á eftir að koma hvort þetta hækkar gistiverð yfir línuna eða hvort aukin samkeppni lækkar verð. Airbnb er orðið nógu öflugt til að geta leikið sér aðeins með eigin verðlagningu og þar með verðlagningu einstaklinga sem þar leigja út herbergi eða íbúðir sínar.