Það gengur fantavel að auka hagnað og arðgreiðslur hjá Icelandair. Hlutabréf flugfélagsins allt að sprengja. Synd að flugfélaginu gengur fjarri því jafnvel að koma þotum sínum í loftið á réttum tíma.
Samkvæmt nýjustu upplýsingum flugupplýsingavefsins Flightstats vantar töluvert upp á að Icelandair geti státað sig af stundvísi á flugleiðum sínum. Frá 15. ágúst og fram til 15. október er Icelandair rétt að slefa í 65% stundvísi á 20 helstu flugleiðum sínum. Sem er eiginlega ekkert minna en hörmulegt
Þennan tíma komust farþegar flugfélagsins frá Reykjavík til Amsterdam aðeins á réttum tíma í 39% tilvika. Til London var flugfélagið aðeins á réttum tíma í 49% tilvika og aðeins 47% tilvika til Stokkhólms. Yfir helmingur ferða til þessara borga um tveggja mánaða skeið á eftir áætlun. Einu skiptin sem Icelandair nær yfir 80% stundvísi er þegar flogið er til Íslands frá París, Stokkhólmi, Helsinki og Boston.
Betur má ef duga skal. Nánar hér.








