Einn „vinsælasti“ golfáfangastaður Íslendinga þessa síðustu og verstu er Valle del Este hótelið og golfvöllurinn í Almeríu á Spáni. Þangað hafa fleiri en ein ferðaskrifstofa auglýst ferðir og golf eins og þú getur í þig látið.

Valle del Este golfsvæðið er flott. En helst til mikill munur á verði milli innlendra aðila og erlendra.

Valle del Este golfsvæðið er flott. En helst til mikill munur á verði milli innlendra aðila og erlendra.

Valle del Este er sannarlega flottur staður. Völlurinn er fyrirtak og þjónusta góð miðað við spænskan mælikvarða. Þá er heldur ekki leiðinlegt að golfbíll er oftar en ekki innifalinn í verðinu sem er risaplús fyrir þá golfara sem nenna ekki að hafa fyrir hlutunum.

En hér ber að líta til þess að innlendar ferðaskrifstofur ráða því mjög mikið hvaða golfstaðir njóta vinsælda og hverjir ekki. Það eru jú ferðaskrifstofurnar sem matreiða þær ferðir sem eru í boði og úrvalið er ekki neitt til að hrópa húrra fyrir. Bara á Spáni eru 470 átján holu golfvellir og 260 til viðbótar í Portúgal. En ferðaskrifstofurnar láta nægja að henda út þetta þremur til fjórum golfáfangastöðum ár hvert.

Hjá ferðaskrifstofunni Vita hefur undanfarið verið hægt að kaupa viku golfpakka á Valle del Este með ótakmörkuðu golfi niður í 199.900 krónur á mann plús gisting og fullt fæði. Það gerir 399.800 krónur á par eða hjón.

Brjótum þetta aðeins niður. Með Wow Air er komist til Alicante, næsta flugvallar, fyrir þetta 40 til 60 þúsund krónur báðar leiðir með tösku og golfsett með fyrirvara. Segjum 100 þúsund alls á tvo saman. Kíkjum svo á golftilboðsvefi á borð við Golfboo og við finnum mörg tilboð á Valle del Este. Eitt þeirra er vikutilboð. Gisting með hálfu fæði plús fimm hringir kostar þar 64 þúsund krónur miðað við gengi dagsins. Margföldum það með tveimur og gisting og fimm hringir kosta par 128 þúsund krónur.

Nema við höfum fengið arfaslaka kennslu í reikningi í skóla þá gerir það alls 230 þúsund krónur til eða frá í heildina. Flug, fimm hringir, gisting og hálft fæði á Valle del Este. Það er 170 þúsund krónum lægra verð en þú þarft að greiða hjá Vita. Jafnvel þó þú bætir við nokkrum hringjum og golfbíl með er samt eftir hundrað þúsund kall í vasanum umfram það sem þú hefðir gegnum Vita.

Er það ekki peningur sem þig munar um?

Golfboo hér.