Það hefur ekki farið ýkja hátt þó Wow Air auglýsi grimmt og galið í velflestum fjölmiðlum en frá desember og fram til apríl er flugfélagið að bjóða flugmiða aðra leið til London  niður í tæpar átta þúsund krónur.

Átta þúsund kall aðra leið til London er óhætt að kalla flott flugtilboð. Mynd Wow Air

Átta þúsund kall aðra leið til London er óhætt að kalla flott flugtilboð. Mynd Wow Air

Það er fullorðinsstærð hjá lággjaldaflugfélagi og sýnir enn og aftur hve mikilvæg samkeppni, þið vitið þetta sem vantar víðast hvar á Íslandi, hefur mikil áhrif til verðlækkunar fyrir neytendur.

Wow Air lækkaði flugfargjöld til London um 30% sama dag og easyJet tilkynnti um beint og reglulegt flug hér fyrir rúmu ári síðan. Og nú þegar risaflugfélagið British Airways er að hefja reglulegt áætlunarflug á sömu leið finnast allt í einu fargjöld niður í 7.998 krónur án farangurs marga mánuði í röð. Þetta er sama verð og Wow Air auglýsti sem stórkostlegt „afmælisverð“ í júní síðastliðnum.

Að sama skapi hefur tilkoma Wow Air á flugleiðum sem Icelandair hefur haft einkarétt á um árabil áhrif til lækkunar hjá því síðarnefnda.

Allt er þetta jákvæðasta mál og með hratt vaxandi ferðamannafjölda til og frá landinu þá vill gleymast að við, þessar rúmlega þrjú hundruð þúsund hræður hér, njótum góðs af með stóraukinni samkeppni. Lifi grimm samkeppni.