Það er ekki margt sem hægt er að slá föstu í flugheimum. Þó hefur það farið langleiðina að bóka flug með sem lengstum fyrirvara því hjá velflestum flugfélögum þýðir það lægri fargjöld en þegar nær dregur. En ekki hjá Wow Air.

Merkileg staðreynd
Hvort sem það er tilviljun eður ei þá kemur í ljós að á flugleiðinni Keflavík-London borgar sig ekki að bóka með löngum fyrirvara hjá hinu íslensku lággjaldaflugfélagi. Þau ykkar sem sáuð leik á borði í maí að bóka flug til London með Wow Air nú í október hafið tapað á þeirri fjárfestingu. Aftur á móti hafa þeir sem bókuðu sömu leið með easyJet sparað allnokkra fjármuni.
Þetta vitum við vegna þess að við gerðum verðkönnun á flugi aðra leið til London í maí síðastliðnum og brúkuðum yfirstandandi októbermánuð til þess arna. Eins og lesa má um hér reyndist meðalverð easyJet verulega mikið lægra en hjá flugfélagi Skúla Mogensen og munaði heilum tíu þúsund krónum á fluginu.
Nú gerðum við aðra könnun og kíktum á verð á flugi aðra leiðina til London í október ef bókað væri núna. Nú hefur dæmið snúist við. Meðalverð í mánuðinum hjá easyJet er 24.800 krónur en meðalverðið hjá Wow Air það sem eftir lifir október reynist vera 20.998 krónur. Þar bókunargjald meðtalið en enginn farangur eins og hjá easyJet.
Töfluna má sjá hér að neðan og þó lægra fargjald sé sannarlega jákvæðasta mál þá skýtur skökku við hvers vegna Wow Air, eins og nánast öll önnur flugfélög, verðlaunar ekki fólk sem bókar með löngum fyrirvara. Miðað við þetta er fólk að tapa fjármunum á forsjálni sé flogið með Wow Air. Sem er galin viðskiptahugmynd.







