Wow Air hefur nú betri heildareinkunn en Icelandair samkvæmt neytendavefnum Skytrax. Wow Air þar með sjö í einkunn af tíu mögulegum en Icelandair verður að sætta sig við sex.

Íslensku flugfélögin bæði yfir meðallagi samkvæmt viðskiptavinum sem tjá sig á vef Skytrax
Þetta er helst forvitnilegt fyrir þær sakir að lengi vel hefur enginn komist með tærnar þar sem Icelandair hafði hælana meðal álitsgjafa hjá Skytrax en þar gefa viðskiptavinir flugfélögunum einkunn eftir þjónustu og viðmóti almennt.
Taka verður þessu með þeim fyrirvara að töluvert meiri fjöldi fólks hefur tjáð hug sinn gagnvart Icelandair en Wow Air en einkunn þess fyrrnefnda hefur lækkað jafnt og þétt frá því að Fararheill byrjaði að fylgjast með fyrir fimm árum síðan. Þá var meðaleinkunn Icelandair um tíma 8 sem er sérdeilis fín einkunn. En það liðin tíð.







