Fregnir frá gamla móðurlandinu herma að óvenjuleg herferð dönsku ferðaskrifstofunnar Spies þar sem mælt er með ferðalögum til að krydda kynlífið og kannski fjölga barneignum undir yfirskriftinni „Gerðu það fyrir mömmu“ hafi heppnast og sala ferða hafi tekið kipp.

Hvatt til kynlífs á ferðalögum og það hittir í mark. Skjáskot

Hvatt til kynlífs á ferðalögum og það hittir í mark. Skjáskot

Sú herferð vakti heimsathygli enda ekki venjan að fyrirtæki hvetji óhikað til kynlífs og barneigna. Sem er þó hið besta mál og margar kannanir hafa sýnt og sannað gegnum tíðina að pör stunda kynlíf mun oftar á ferðalögum en heimavið. Danskir glíma líka við almennt áhugaleysi á barneignum sem þykir ekki góð latína fyrir þjóðir sem vilja halda sér í fremstu röð.

Til að hjálpa til, og græða í leiðinni, selur Spies nú sérstakar ferðir og gefur vænan afslátt á þeim ferðum líka. Sérstakur „gleðipakki“ er innifalinn með nuddi og heilsuolíum og kampavín bíður allra á herbergjum. Í ofanálag er fólki bent á nokkrar spennandi stellingar ef einhver þarf hjálp við slíkt.