Enn á ný hefur eitthvað komið upp á hjá flugfélaginu Wow Air og enn einu sinni er ekki snefil af skýringum eða viðvörunum að finna á vef flugfélagsins.

Tafir á tafir ofan. Mynd Wow Air
Flugfélag Skúla Mogensen, sama milljarðamærings og kýs að greiða lága skatta sína annars staðar en á Íslandi en fær feitan afslátt fyrir að koma með fé inn í landið, er komið með annan fótinn í Ryanair-deildina. Þá deild þar sem viðskiptavinir skipta nákvæmlega engu máli eftir að greiðsla hefur átt sér stað.
Enn eitt dæmið er að enn einu sinni eru tafir reglan en ekki undantekning á flugleiðum félagsins. Þegar þetta er skrifað er tveggja tíma seinkun á nokkrum áætlunarferðum flugfélagsins frá Keflavík. Enn og aftur er ekki staf um það að finna á vef flugfélagsins né þeim samfélagsmiðlum sem Wow Air brúkar ört til annars.
Það er auðvelt að skilja samskiptaleysið. Það sparar peninga og hjá lággjaldaflugfélagi er aðeins eitt merkilegra en að skila arði og það er að spara út í hið óendanlega. En þótt peningar detti í vasa Skúla og félaga þá er þetta svo ægileg lítilsvirðing við viðskiptavini að engu tali tekur. Er tími viðskiptavina ykkar einskis virði?








