Mál að rífa upp veskið ef það er neisti í brjósti og vilji til gjörða áður en yfir lýkur. Spænska lággjaldaflugfélagið Vueling er að skjóta út milljón sætum á færibandi og tilboðsverði.

Milljón sæti á færibandi á tilboðsverði hjá Vueling
Eins og Fararheill hefur áður fjallað um er æði oft hægt að kaupa flug til og frá landinu á lægsta verði með hinu spænska Vueling sem hingað flýgur frá Barcelóna og Róm reglulega þegar þetta er skrifað. En þar sem það flugfélag auglýsir ekkert hérlendis og stór hluti landans les ekki Fararheill þá þarf fólk reglulega að greiða of mikið fyrir flug til þessara tveggja borga.
En okídókí, það er jú bullandi uppgangur og allir eiga seðla sem þeir nota ekki neitt.
Fyrir okkur hin sem þurfum að sjá eftir 70% af tekjum í leigu eða rányrkju af öðru taginu er Vueling sérdeilis fínn kostur til að flýja land augnablik. Ná áttum, borða svínakjöt úr dýrum sem höfðu meira pláss en þrjá sentimetra þann skamma tíma sem þau lifðu og jafnvel losna við bjúg eða appelsínulæri eða krabbamein í rassi. Hver veit hvað breytt umhverfi gerir fyrir okkur.
Enn betra þó þegar sama Vueling er að henda út sértilboðum eins og nú. Önnur leið til Barcelóna á 14.800 svo eitt dæmi sé tekið 🙂







