Tæpur mánuður er liðinn síðan fjöldi farþega Primera Air lenti í vægast sagt ömurlegri heimferð frá Tenerife. Heimferð sem tók næstum sólarhring. Flugfélagið skoðar nú hugsanlegar bótagreiðslur.

Primera Air skoðar nú hvort koma eigi til móts við farþega vegna gríðarlegra tafa á flugi frá Tenerife í ágúst.

Primera Air skoðar nú hvort koma eigi til móts við farþega vegna gríðarlegra tafa á flugi frá Tenerife í ágúst.

Það staðfestir upplýsingafulltrúi Primera Air við Fararheill en töluverður fjöldi farþega í umræddu heimflugi hefur farið fram á bætur vegna tafanna.

Lesa má um heimferðina hér en í stuttu máli dróst sex tíma flugið vel á langinn þegar millilenda þurfti á Írlandi þar sem í ljós kom að áhöfnin var þreytt og komin yfir á tíma. Allir sendir á hótel um miðja nótt eftir langa bið um borð og upplýsingagjöf af skornum skammti eða beinlínis röng. Sem sagt ekki skólabókardæmi um hvernig á að koma vel fram við viðskiptavini eða gera það besta úr slæmum aðstæðum.

Að mati ritstjórnar Fararheill og lögfróðra manna sem við höfum rætt við leikur alls enginn vafi á bótaskyldu Primera Air í þessu tilfelli. Og flugfélagið segist vera að skoða það í samvinnu við Neytendasamtökin þessa dagana samkvæmt upplýsingum frá upplýsingafulltrúa. Hvenær niðurstaða kemst í það liggur ekki ljóst fyrir. Sú staðreynd að Primera Air á í viðræðum við Neytendasamtökin bendir þó til að flugfélagið viti upp á sig sökina.

Þessu tengt er þess virði að lesa grein Fararheill um þegar Primera Air hafnaði bótakröfu fólks sem varð fyrir miklum töfum fyrr í sumar á leið frá Tyrklandi. Sex vikur tók að komast að þeirri niðurstöðu og tilkynna farþegum. Málið tók þó kipp til hins betra eftir að Fararheill fjallaði um. Skömmu síðar var farþegum boðin sátt í málinu sem flestir samþykktu.

Alls óhrædd að láta okkur vita af vafasömum gjörningum í flugi og ferðum. Það breytist aldrei neitt til batnaðar sem ekki sér dagsins ljós.