Eins og ferðaþyrstum ætti að vera kunnugt er nú komist fram og aftur til London með hinu þekkta flugfélagi British Airways. Sjálfsagt að kíkja þangað ef för til Lundúna er á döfinni. En ólíkt öðrum sem þangað fljúga er eitt sérstaklega gott við BA.

Ef þú finnur sérdeilis góðan díl hjá British Airways geturðu tryggt sæti á því verði í þrjá sólarhringa meðan þú tekur lokaákvörðun.

Ef þú finnur sérdeilis góðan díl hjá British Airways geturðu tryggt sæti á því verði í þrjá sólarhringa meðan þú tekur lokaákvörðun.

Sért þú í hópi ferðaþyrstra eins og ritstjórn Fararheill kannast þú eflaust mætavel við linnulitlar hækkanir á fargjaldi að því er virðist á fimm mínútna fresti með íslensku flugfélögunum. Um matarleytið finnur þú flott verð á flugi til München eða Gautaborgar en í stað þess að bóka strax hinkrarðu við yfir matartímann. Þegar þú sest aftur við tölvuna klukkustund síðar hefur flugið sem þú varst að skoða hækkað töluvert í verði.

Tíminn er peningar segja viðskiptafræðingar og sjaldan á það betur við en í tilfellum sem þessum.

En með tilkomu British Airways, sem áratugum saman hefur þjónustað fólk sem ekki lætur auðveldlega troða á sér breytist þetta til batnaðar. Flugfélagið býður nefninlega þriggja sólarhringa tryggingu ef þú finnur flug á verði eða dagsetningu sem hentar en ert ekki hundrað prósent viss.

Það er góð þjónusta og flugfélagið er heldur ekki að kreista okkur til blóðs vegna þess. Tryggingin kostar um átta hundruð krónur og það gjald fæst meira að segja endurgreitt þegar og ef þú bókar svo flugið innan þriggja daga. Enn betra er að ef svo óvænt vildi til að kostnaður lækkar við flugið sem þú valdir þá lækkar þitt verð sjálfkrafa. Flugfélagið tekur á sig kostnaðinn ef það gerist þó reyndar sé mikil undantekning að verð á flugi lækki sísona.

Þetta er þjónusta í lagi og tryggir þér sæti og tíma til frekari umhugsunar í leiðinni.