Eins og Fararheill varaði við á mánudaginn urðu verulegar tafir á flestum flugferðum Wow Air þennan daginn. Við sláum föstu að farþegar sem töfðust lengur en þrjár stundir eiga inni duglegar bætur vegna tafanna samkvæmt Evrópureglum.

Wow Air lét undir höfuð leggjast að kynna farþegum ÖLL þeirra réttindi við miklar tafir í dag. Það er klárt brot á Evrópureglum.

Wow Air lét undir höfuð leggjast að kynna farþegum ÖLL þeirra réttindi við miklar tafir í dag. Það er klárt brot á Evrópureglum.

Wow Air, sem lét að mestu undir höfuð leggjast að láta viðskiptavini vita af aflýsingu flugs og töfum í kjölfarið á mánudaginn sýndi örlítinn lit gagnvart þeim farþegum sem töfðust í dag. Flestir, ef ekki allir, fengu bréf frá flugfélaginu þar sem töfin er afsökuð og sögð vegna alvarlegra veikinda um borð í einni vél Wow Air sem varð til þess að henni þurfti að snúa við. Þar með fauk áætlun flugfélagsins út um gluggann enda vélar félagsins keyrðar eins lengi hvern sólarhring og framast er unnt og ekkert má út af bera.

Þegar þetta er skrifað er, eins og við spáðum, gert ráð fyrir töfum á brottför véla flugfélagsins á miðvikudaginn líka og við setjum þúsund kall á að ekki næst að vinna upp tapaðan tíma að fullu fyrr en á fimmtu- eða föstudag. Þetta er nefninlega ekki í fyrsta skipti sem Wow Air missir eina vél tímabundið og þá tók viku að koma áætlun í samt lag.

En það er eitt enn. Wow Air braut Evrópureglur í dag gagnvart viðskiptavinum sínum. Í bréfinu þar sem farþegar eru beðnir afsökunar á töfum kemur aðeins fram afsökunin og loforð um að biðfarþegar fái inneignarmiða fyrir mat og drykk. Ekkert er þar að finna um hugsanlegar bætur né heldur þann möguleika að koma farþegum í annað flug til sama áfangastaðar. Svo vill til að í einhverjum tilfellum, frá London til dæmis, voru önnur flugfélög að fljúga sömu leið á svipuðum tíma.

Því miður fyrir landann er engin stofnun að gæta þess að á okkur sé ekki troðið í tilfellum sem þessum og velflestir vita ekki einu sinni hver réttur flugfarþega er við tafir eða seinkanir. Og flugfélögin eru ekkert að auglýsa það heldur þrátt fyrir skýrar reglur þar að lútandi. Ágætt að koma því að þegar og ef gera þarf kröfu á Wow Air gegnum Samgöngustofu. Það er leiðin ef flugfélagið býðst ekki strax til að bæta fólki tafirnar.

Bréfið hér að neðan

wowser