Ferðaskrifstofa Virgin flugfélagsins er þessa stundina að bjóða mjög fýsileg ferðatilboð til Pattaya á Tælandi í októbermánuði.

Pattaya er ekki allra en sannarlega er þar stórgott veðurfar og verðlag þannig að íslenska krónan virðist merkileg.
Það er fremur óvenjulegt að finna ferðatilboð til Tælands svo snemma vetrar og um að gera að gefa gaum fyrir þá sem hafa séð Pattaya í hillingum.
Um er að ræða tvær átta daga ferðir frá Bretlandi og kostnaðurinn við flug þangað og heim aftur bætist við eins og vera ber. En engu að síður er 119 þúsund krónur á mann miðað við tvo saman ekki stór upphæð fyrir flug og ágætt hótel í ofanálag. Það gildir um fyrri ferðina í byrjun október en sú seinni um miðjan sama mánuð kostar manninn 138 þúsund krónur.
Miðað við að flug héðan og heim fæst í október kringum 40 þúsund á mann má því njóta rúmrar viku í Pattaya fyrir kringum 300 þúsund krónur eða svo fyrir par. Það fer í bækur sem mjög gott verð.







