Innan tíðar vænkast hagur ferðaþyrstra enn meir en þegar er orðið. Í lok október lendir hérlendis eftir langt hlé fyrsta vél British Airways frá London og þar með hefst reglulegt áætlunarflug þess mikla flugfélags hingað til lands.

Víst er hægt að finna lygilega flott tilboð með British Airways. Skjáskot
Þar með verða þau fjögur talsins flugfélögin sem bjóða okkur flugferðir milli Keflavíkur og Lundúna og öfugt og ekkert dapurlegt við það. Líklega er það í fyrsta sinn sem við getum valið um svo fríðan hóp flugfélaga til eins og sama staðar en flugfélögin fjögur eru þá British Airways, Icelandair, Wow Air og easyJet.
BA flýgur fram og aftur fjórum sinnum vikulega og þó fargjöld þeirra séu ekki á pari við það sem lægst gerist hjá easyJet og Wow Air þá eru Bretarnir síst dýrari en Icelandair.
Svo er líka víst að svona fyrst um sinn allavega munu Bretarnir koma inn með trompi og gera sig breiða. Það reyndar þegar byrjað eins og sést á meðfylgjandi skjáskoti af vef þeirra. Önnur leiðin á 5.050 krónur!!! Það setur meira að segja forráðamenn easyJet og Wow Air mjög hljóða.







