Þetta gæti kveikt einhverja neista í hjarta: Nýja-Delí fram og aftur fyrir 69.170 krónur, Shanghai fram og aftur fyrir 73.130 krónur eða fram og aftur til Líma í Perú fyrir 111 þúsund krónur.

Vert að gefa ferðatilboðum KLM auga enda vægast sagt lág fargjöld til margra áfangastaða. Mynd Gerard Stolk
Óhætt að kalla þetta ferðatilboð sem bragð er að og enginn aukvisi að bjóða þetta heldur. Hollenska flugfélagið KLM er að dúndra út hinum ýmsu gylliboðum hvort sem er frá Hollandi sjálfu eða nágrannalöndum. Ofangreind tilboð til að mynda frá Hamborg í Þýskalandi og bjóðast fram til 9. september. Sams konar eða svipuð tilboð einnig í boði frá París, Amsterdam og víðar ef það hentar betur.
Annars er óhætt fyrir ferðaþyrsta að hafa augun almennt opin núna. Velflest stærstu flugfélög Evrópu og ferðaskrifstofur líka bjóða nú hver í kapp við annan og hægt að gera afar góð kaup víða ef fólk hefur áhuga að setja saman sínar eigin ferðir. Eins og Fararheill hefur ítrekað sýnt fram á þá getur tímakaupið við það dundur skipt tugum og jafnvel hundruð þúsunda króna miðað við að kaupa tilbúnar pakkaferðir.







