Þurfi einhver bráðnauðsynlega að lyfta sér duglega upp þessa dagana væri ekki úr vegi að bóka flug til Edinborgar í Skotlandi og það sem allra fyrst. Þar er hafin ein allra skemmtilegasta hátíð í Bretlandi, Edinborg Fringe eða Jaðarhátíð Edinborgar, og óhætt að veðja fúlgum fjár að þar finna allir eitthvað við hæfi.

Jú, talsvert um að velja í miðborg Edinborgar næstu dagana.
Hátíðin atarna fer fram vítt og breitt um borgina en hún er ekki skipulögð á neinn hátt heldur geta allir sem áhuga hafa sett á fót sýningu hvar sem pláss er og þetta árið eru rétt tæplega þrjú þúsund aðilar með einhvers konar uppákomur. Það er því fjandanum erfiðara að láta sér leiðast þó fólk reyni.
Viðburðirnir eru upp og niður eins og gengur. Hér stíga frægar stjörnur á stokk víða en áhugafólk í leiklist, tónlist, uppistandi svo ekki sé minnst á hundruð listamanna reyna líka að heilla gesti og gangandi þær þrjár vikur sem hátíðin stendur en henni lýkur 30. ágúst. Víða er frír aðgangur en til að komast í það allra besta þarf að kaupa passa eða miða á staka viðburði.
Auðvitað þarf ekki að spyrja að því að gisting í borginni er nokkuð dýrari en gengur og gerist annars og óhætt að bæta fimm til tíu þúsund krónum lágmark ofan á meðalgistiverð í Edinborg. Á hótelvef Fararheill finnum við þó allnokkuð af ágætum tilboðum eins og nótt á fjögurra stjörnu Brittannia Edinburgh niður í 24 þúsund krónur. Nótt á topp hosteli fæst niður í sex þúsund krónur.
Flugfélagið easyJet flýgur beint héðan til Edinborgar og miðar aðra leiðina næstu daga þegar þetta er skrifað fást niður í 22 þúsund krónur. Einnig er líka hægt að fljúga með Icelandair til Glasgow og taka lest eða rútu á milli. Það þó helmingi dýrara. Önnur leiðin með Icelandair þessa stundina næstu dagana kostar að lágmarki 40 þúsund krónur.







