Seint verður sagt að hjá Úrval Útsýn séu menn að vanda sig mikið. Annaðhvort það eða að ferðaskrifstofan er að bjóða einhverja mögnuðustu helgarferð sem sögur fara af.

Stórkostleg helgarferð hjá Úrval Útsýn sem ekki er þó í boði þegar allt kemur til alls.. Skjáskot
Það þarf ekki ferðaþyrst fólk til að opna augun upp á gátt þegar þessi melding kemur í netpósti einn góðan veðurdag (sjá skjáskot). Helgarferð til Barcelóna, Benídorm, Costa Brava og Balí!!!
Verst að ein helgi eða rúmlega það dugar ekki til að dekka alla þessa staði.
Kannski Úrval Útsýn ætti að ráða einhvern eldri en tvævetur til að sjá um netauglýsingar því ekki finnst neins staðar á vef þeirra helgarferð til þessara fjögurra staða.
Ergo: vörusvik og ekki í fyrsta sinn sem hinn ómæti Pálmi Haraldsson, eigandi Úrval Útsýn, stundar slíkt. En kannski ekki von að Pálmi tími að spreða í almennilegt starfsfólk. Það kostar nefninlega.

En ókei. Við getum allavega huggað okkur við að á bókunarvef Fararheill er hægt að finna raunverulega frábær tilboð á gistingu um víða veröld sem standast skoðun 🙂







