Dusseldorf fyrir þrjú þúsund kall. Bordeaux fyrir þrjú og sex. Carcasonne fyrir 4.600 og Genóa fyrir 4.900 krónur. Hljómar ekki illa.

Milljón sæti á færibandi hjá Ryanair.
Ofangreind tilboð eru meðal þess sem lággjaldaflugfélagið Ryanair er að bjóða upp á þessa stundina og næstu sólarhringa til 12. júlí í tilefni 30 ára afmælis fyrirtækisins. Jamm, merkilegt nokk er þetta írska flugfélag 30 ára gamalt. Sem sýnir enn og aftur að það tekur jafnvel hin vinsælustu fyrirtæki fleiri ár og áratugi að ná fótfestu á toppnum. Óhætt er að fullyrða að enginn Íslendingur hafði heyrt af Ryanair fyrir aldamótin síðustu enda þá fyrst sem flugfélagið fór að láta að sér kveða. En það tók líka fimmtán ár að komast á þann stað.
Flugfélagið er að dúndra út milljón sætum á færibandi í sumar, haust og vetur á enn lægra verði en almennt gerist en auðvitað flýgur Ryanair ekki enn til Íslands. Það verður því að gera sér ferð til London, Köben, Osló, Parísar eða annarra borga Evrópu til að njóta þessara tilboðsfargjalda.
Góðu heilli höfum við easyJet, Norwegian, Wow Air, Vueling, Wizz Air og Transavia sem öll eru lággjaldaflugfélög sem fljúga til og frá Íslandi. Það er því hæg heimatökin að bóka með þeim út í heim og svo lengra áfram með Ryanair ef vilji er til og veskið tómlegt.
PS: notið stikuna á vef Ryanair til að finna allra lægstu fargjöldin. Þau koma nefninlega ekki upp svo glatt 😉







