Það þarf ekkert að þvælast lengi um vinsæla staði á jarðarkringlunni í dag án þess að fá upp í kok af fólki sem ekki virðist geta hreyft legg né lið án þess að taka myndir og það auðvitað með hinu vinsæla selfie-priki eða lyftistöng eins og við hjá Fararheill kjósum að kalla fyrirbærið.

Það er sérstaklega vandlifað fyrir selfie-elskendur í Rússlandi. Skjáskot

Það er sérstaklega vandlifað fyrir selfie-elskendur í Rússlandi. Skjáskot

Auðvitað er ritstjórn Fararheill í stórum minnihluta þeirra sem telja selfie-prikin hinn fáránlegasta hlut. Það er nefninlega ekkert svo langt síðan að til var annar og mun skemmtilegri gripur til að taka myndir á hinum og þessum stöðunum. Sá kallaðist manneskja. Og síðan hvenær hefur ekki verið hægt að fá næsta mann til að smella af eins og einu Kódak andartaki?

Slík prik hafa enda verið bönnuð víða um heim og á flestum vinsælli söfnum svo dæmi sé tekið. Fólk er nefninlega svo upptekið af því að taka flottar myndir af sjálfu sér til að birta á samfélagsmiðlum að það gleymir sér oft og ítrekað. Skemmir jafnvel hluti eða truflar aðra borgara eða ferðamenn og fyrir kemur að fólk slasast. Það þarf nefninlega dálítið pláss til að taka góða selfie.

Rússar hafa tekið á þessu vandamáli á nýstárlegan hátt með nýjum reglum og kynningarbæklingi og límmiðum sem finna má á flestum fögrum stöðum þess ágæta lands. Þar nefninlega hefur þurft að bera ungt fólk til grafar sem orðið hefur aðeins of upptekið af því að ná hinni besti mögulegu sjálfsmynd og látið lífið við lætin.

Stjórnvöld þarlend hafa því bannað sjálfsmyndatöku með selfie á járnbrautarstöðvum, á bryggjum, í bátum og dýragörðum og svo má lengi telja eins og sést á meðfylgjandi mynd. Vandlifað í henni veröld..