Æði margt gott má segja um flugfélagið easyJet sem meðal annars flýgur orðið reglulega héðan út til ýmissa borga í Evrópu. Lág fargjöldin rokka, nýjar vélarnar hreinar og fallegar og þjónusta um borð hreint ágæt almennt talað. En einn stóran mínus þarf easyJet þó að burðast með.

Stór mínus í kladda easyJet. Mynd Clement Alloione

Stór mínus í kladda easyJet. Mynd Clement Alloione

Það eru vélar easyJet sem lenda oftast í seinkunum á ferðum sínum og ekki nóg með það heldur eru það líka flug á vegum easyJet sem oftast eru felld niður með manni og mús til mikilla óþæginda fyrir flugfarþega.

Það kemur kannski spænskt fyrir sjónir en bara nú síðustu 30 dagana hefur easyJet fellt niður 463 flugferðir sínar. Það er ótrúleg tala en þó aðeins hjóm eitt í samanburði við fjölda tafa hjá flugfélaginu. Á sama 30 daga tímabili varð seinkun á hvorki fleiri né færri en 12.835 flugferðum félagsins. Það gera tæplega 430 flugferðir hvern einasta dag!

Þetta er þrefalt til fjórfalt hærri tíðni aflýsinga og tafa en hjá öðrum vinsælum lággjaldaflugfélögum eins og Norwegian eða Flybe og Ryanair kemst ekki einu sinni á topp 20 listann yfir tafir og aflýsingar samkvæmt skrám flugvefsins Flightstats.