
Bandarísk flugfélög og skipafyrirtæki í óða önn að koma Kúbuferðum á koppinn.
Jæja, þá eru fyrstu bandarísku flugfélögin að hefja beint flug milli Bandaríkjanna og Kúbu þó enn sé ekki búið að hamra að fullu nýlegt samkomulag stjórnvalda ríkjanna um eðlileg samskipti. Góðu fréttirnar þær að hægt verður að fljúga beint frá Orlando strax frá næsta sumri.
Þann 8. júlí ætlar ferðskrifstofan Island Travel & Tours að hefja reglulega áætlunarflug milli Orlando og Kúbu og ráð er gert fyrir að flug báðar leiðir fáist niður í 60 þúsund krónur eða svo. Það í dýrari kantinum fyrir flug sem aðeins tekur einn og hálfan tíma hvora leið en líklegt er að það hossi fljótt niður þegar stærri aðilar hefja flug líka.
JetBlue og American eru með áætlanir um reglulegt flug frá New York og Miami og einn stór aðili er að skoða beint flug frá Baltimore. Það verður þó líklegt að bíða hausts áður en þessir stóru fara af stað.
Siglingafyrirtæki bandarísk eru líka að undirbúa Kúbuferðir og þó ekki hafi formlega verið tilkynnt um slíkt eru öll stóru fyrirtækin í þeim bransanum að endurskoða Karíbahafssiglingar sínar til að koma Kúbu inn í leiðakerfið. Fyrstu stopp þar gætu átt sér stað í lok árs eða byrjun þess næsta.







