Þó mikið fari fyrir auglýsingum Wow Air í blöðum og fjölmiðlum fer æði lítið fyrir miklum hækkunum á allri þjónustu flugfélagsins. Til dæmis þeirri staðreynd að það er nú 72 prósent dýrara að taka eina tösku með í flugið til Alicante en var fyrir aðeins tveimur árum.

Óðaverðbólga hjá Wow Air. Mynd Wow Air
Það er vægast sagt rífleg hækkun á sama tíma og eldsneytisverð hjá flugfélögum hefur lækkað um helming og vekur athygli að á sama tímabili hefur farangursgjald lággjaldaflugfélagsins easyJet staðið í stað.
Wow Air hóf upptöku sérstaks farangursgjalds haustið 2012 en jafnvel þá voru engin þyngdartakmörk á handfarangri fólks eins og síðar varð raunin. Þá kostaði 2.900 krónur aukalega ofan á flugfargjaldið að taka með 20 kg tösku hvern fluglegg.
Tæpu ári síðar hækkaði töskugjaldið í 3.900 krónur fyrir sömu 20 kílóa töskuna. Það töskugjald hækkaði svo á síðasta ári í 3.999 krónur og gildir enn fyrir það sem nú er kallað styttri flugferðir til London eða Köben. En sé fólk á leið til Alicante eða Tenerife kosta 20 kílóin nú 4.999. Áður var enginn munur á töskugjaldi eftir vegalengd og munurinn rúmlega sjötíu prósent.
Hér skal hafa í huga að hér er vísað til töskugjalds sé taska bókuð um leið og flugið sjálft gegnum netið. Komi upp sú staða að greiða þurfi fyrir tösku á flugvelli svona ef einhver verslar aðeins meira en áætlað var þarf að greiða 6.999 krónur að lágmarki í viðbót.







